Brekkufélagar

Gáfað, kraftmikið og fallegt blogg

16.10.2011 19:27:31 / atlih

Bíófélagið kynnir...

Fyrsta bíóferð vetrarins hjá þriðjudagsbíó klúbbnum.

Bíóstjórinn hefur valið myndina Drive að þessu sinni. Myndin hefur fengið mjög góða dóma á imbd.com. Annars veit ég ekki mikið um myndina enda er ég á þeirri skoðun að því minna sem maður veit um væntanlega mynd því skemmtilegri getur hún orðið.

Myndin er sýnd í Egilsbíó kl 20 á þriðjudaginn 18. okt. Í vetur munum við reyna að prófa mismunandi bíósali (ekki bara smárabíó svo að það sé stutt fyrir Gumma).

Kveðja

Bíóstjórinn


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.09.2011 14:35:07 / geiri

Íbúð til leigu

50 fm kjallaraíbúð í miðbæ Kópavogs (nálægt  Hamraborginni) er laus til leigu, íbúðin er kjörin fyrir einstakling eða par. Íbúðin er í 3 mín göngufæri frá Menntaskólanum í Kópavogi.
Nánari upplýsingar veitir Hrund í síma 825 6303.

Hvað gerir maður ekki fyrir tengdó:)

mbk

Geiri


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.07.2011 15:37:26 / EikiS

13. ágúst 2011

Sælir Brekkurpungar og píur.
Takið endilega frá 13.ágúst nk. því við hjónin verðum með sumarpartý þennan dag.
Pælingin er að allir mæti sem einhver frægur einstaklingur eða pör.

Ég hef fengið góð viðbrögð frá norðanmönnum og um að gera að fjölmenna suður yfir heiðar í menningarreisu upp á gamla mátann :)

Hér má sjá nokkrar myndir frá síðasta sumarpartýi okkar.
Partýljón
Endilega látið okkur vita hvort þið komist.
Kv. Eiríkur og Elísabet

Uppfært hér kemur ný mynd af Geira eftir ábendingu hans...
http://www.exposay.com/celebrity-photos/jeremy-jackson-christian-audigier-the-nightclub-grand-opening-arrivals-1wDDTo.jpg Auðvitað ertu líkari honum þessum Geiri :)

» 25 hafa sagt sína skoðun

12.05.2011 15:38:37 / atlih

Golfsumarið 2011

Sælir

Hverjir ætla að spila eitthvað golf í sumar?

Ég er búinn að skrá mig í Setbergklúbbinn og mun spila eitthvað það

kveðja
Atli (22,9)

» 5 hafa sagt sína skoðun

03.04.2011 14:33:08 / buni

Icy

Sælir elskulegir.

Áður en Brekkusíðan fer í sumarfrí setti ég inn könnun sem ræður mínu atkvæði enda er gáfnafar og viska B manna þekkt stærð og raun með ólíkindum að til okkar hafi ekki verið leitað í samningagerðinni!


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.03.2011 20:40:15 / elmo

Kominn norður á Fimmtudag. Hittingur???

Er einhver game að hitta gamla og frúnna og eta og sippa í sig????   Föstudagskvöldið væri geggjað í það.....   Endilega látið heyra í ykkur....

kv. Elmar Trainer.....


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.02.2011 19:29:27 / elmo

Vantar íbúð fyrstu helgina í Mars. Er að fara norður

Jæja,  þá er það fótboltaferð með stelpuna norður fyrstu helgina í mars.
Ætlaði að fara norður að norfa á stelpuna keppa í fóbó og kíkja á vinina og fjölskylduna í leiðinni.

En þá er eitthvað rosa skíðamot fyrir norðan og allt sem ég leita af er upptekið.

Ef einhver hefur hugmynd um íbúð fyrir okkur 4 þá endilega látið mig vita.

ps.  Það væri snilld að henda saman hitting og smá sötri og spili eða eitthvað álíka þessa helgi.  Föstudagskvöldið væri best í það fyrir mig.  (verra að vera timbraður á leiðinni heim).

peace out Coach.


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.02.2011 10:57:54 / geiri

Bútstaðururinn 2011

Heilir og sælir pungar og aðrir þrjótar

Nú fer senn að líða að brottför í Bútstaðinn hans Ragga. Eftir mikla eftirgrenslan, yfirlegu, andvökunætur og inntöku náttúrlyfja er ég þó litlu nær um þennan Bútstað annað en að hann er niðurkominn í Svignaskarði sem er í reiðhljólafæri frá Borgarnesi.

Tómas okkar er goðsögn á þessu svæði fyrir grillaðar pylsur og herma fréttir að enginn á þessu svæði hafi náð viðlíka tækni og magni með grillaðar pylsur eftir aðeins tvær vikur í skarðinu... sögðu aðrar fréttir að einungis ein af 724 pylsum sem Tómas hefur grillað þarna undanfarin tvö sumur hefði sprungið. Vill viðkomandi ekki koma fram undir nafni en telur klárlega að hér sé um Íslandsmet að ræða án þess þó að geta staðfest eitthvað meira en að þetta væri 100% Borgarfjarðarmet í það minnsta. Ekki fylgdi sögunni hvernig ein pylsan fór að því að springa en grunar undirritaðann að þetta hafi verið pólsk bjúga sem hafi fyrir afglöp pólsks starfsmanns Norðlenska lekið ofan í sérpöntun Tómasar fyrir síðustu Svignaskarðsferð.

Jæja, við vitum þá hver grillar. En hverjir ætla að mæta? Þurfum að neggla niður töluna sem fyrst svo hægt verði að hefja almennilega skipulagninguna, undirbúninginn, aðgerðaráætlunina, verklýsingarnar og innkaupaþörfina.

Verum virkir og svörum, þetta er jú eins og á Raufarhöfn... ef þið gerið það ekki þá gerir það enginn.

Góðar stundir
Geirbreiður


» 13 hafa sagt sína skoðun

02.02.2011 16:12:28 / elmo

Föstudagur til geði... Partý hjá Eika??

Ég mun ekki komast í summerbustaded og átti afmæli um helgina....

Ég spjallaði við Buna og Eika um eitthvað sniðugt. 
Hvernig væri að hittast með konurnar á föstudag og fá okkur aðsendan mat og drekka aðeins með...   timi..  einhverstaðar milli 18 og 02.00
Held að Eiki sé heitur að halda samkomuna...

Er einhver hiti fyrir þessu.  veit af stuttum fyrirvara en svona er Ísland í dag.

kv. Trainerinn.

» 14 hafa sagt sína skoðun

29.01.2011 11:24:35 / buni

KynTrölli

Sverre okkar er alltaf að berjast um sæti enda er hann sætur! 6. sæti á HM eru vonbrigði en það sem særði KynTrölla meira var 4. sætið í keppninni kynþokkafyllsti Íslendingurinn eða sætasti strákurinn eins og afmælisbarnið Dj-E-L-MOTH vill kalla hana.

En KynTrölli er ekki hættur að keppa um sætur því nú er hann að landa verðlaunum sem besti varnarmaður Íslandssögunnar þ.e.a.s. ef við KJÓSUM OKKAR MANN!

Til hamingju með daginn E gamli!


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.01.2011 15:32:53 / geiri

Búdenstaden taka 2

Sælir sveinar

Taka tvö
Nú er komið að árlegu búdenstaden ferðinni okkar. Við Friðrik og Buni fórum lauslega yfir þetta í gær dag og vorum að gæla við dagsetningarnar 25.-27.febrúar 2011 11.-13.febrúar eða 11.-13.mars.
Hvernig hljóma þessar dagsetningar? Mitt atkvæði fer með 11.-13. febrúar!

Eins þurfum við að finna búdenstad, skildist á Buna að Eiríkur væri eitthvað að vinna í því. Spurning með að menn kanni með sín verkalýðsfélög og erum við þá að horfa í skúr með svefnplássi fyrir amk 11 skrokka.
Borgarfjörðurinn barst í tal í gær dag sem álitlegur kostur.
Sá einnig að Efling er með nokkuð stórann bústað í Svignaskarði. Er einhver í Eflingu? Gummi, á kennó ekki bústað þar? Eiki? Atli? Raggi? Peddi?

Hvað segja menn?

Góðar stundir
Breiði

» 16 hafa sagt sína skoðun

10.01.2011 20:07:34 / kiddi

ELDGAMALL

Sælir piltar

Næstkomandi föstudag 14.jánúar þá ætla ég að bjóða ykkur og unnustum ykkar í afmæli mitt í steik, benna, bjór, morgan og allt sem hugurinn ber þig (en samt ekki hálfa leið) Staðsettning Steikhús Akureyri kl. 19:00, þeir sem sjá sig fært um að koma látið vita og þeir sem sjá sig ekki fært um að koma látið líka vita.

gemli gemli kiddi casio:lol:

» 7 hafa sagt sína skoðun

10.01.2011 11:29:08 / geiri

Búdenstaden

Sælir sveinar

Gleðilegt nýtt ár allir.
Nú er komið að árlegu búdenstaden ferðinni okkar. Við Friðrik og Buni fórum lauslega yfir þetta í gær og vorum að gæla við dagsetninguna 25.-27.febrúar 2011.
Hvernig hljómar þessi dagsetning?
Eins þurfum við að finna búdenstad, skildist á Buna að Eiríkur væri eitthvað að vinna í því. Spurning með að menn kanni með sín verkalýðsfélög og erum við þá að horfa í skúr með svefnplássi fyrir amk 11 skrokka. Borgarfjörðurinn barst í tal í gær sem álilegur kostur.

Hvað segja menn?

Góðar stundir
Breiði


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.01.2011 01:36:57 / gummi

Aldrei fór ég norður

Jæja, þá eru hátíðarnar að verða búnar og vonandi að menn séu almennt sáttir við það. Eitthvað virðist vera óljóst hvort að maður hafi misst af miklu eða litlu fyrir norðan. Ekkert gamlárs í Hrafnó en ég frétti að Skari hafi þó haft eitthvað annað að gera en að skrifa á jólakort heima hjá Ásgeiri kvöldið áður. Ég græt svo sem ekki að jólakortaleysið frá Skara þar sem ég geymi alltaf síðasta jólakortið frá honum. Það er frá árinu 1992.:haha:
Annars er Sverre á leið til höfuðborgarinnar í vikunni til að æfa sig í handbolta. Hann ætlar að misnota nokkra Svía í þeim tilgangi og það oftar en einu sinni. Alveg spurning hvort að við fjölmennum í Laugardalshöllina til að verða vitni að því þegar Sverre leggur sér nokkra Svía til munns. ???

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 76
Heimsóknir
Í dag:  21  Alls: 197324
Könnun
Hvað á að kjósa í Icesave?
Já, ég ætla að borga þetta shit
5 atkvæði

Nei, kemur ekki til greina að ég borgi þetta shit
6 atkvæði

Alveg sama, ætla að vera fullur og það er það sem skiptir máli
2 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 13
Dagatal
Gamalt blogg
RSS tengill
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1628 dögum
Heimurinn ferst