Ég fór um helgina með frúnna á Pósthúsið til Buna. Þar galdraði hann fram humar og nautakjötslokur í annað sinn fyrir mig. Ég er þvílíkt kominn á bragðið enda vil ég meina að í fyrra skiptið hafi upphafið að bronsinu á EM verið markað á staðnum. Þá skóflaði maestro Sverre þessum líka risa lokum niður ásamt börger og frönskum (eins og um pinnamat) væri að ræða með þessum líka góða árangri. Takk fyrir okkur Bjarni minn.