27.03.2009 22:04:29 / tommi
Merkilegt hvað maður þoldi að horfa á síðustu færslu lengi. Ætlaði svona rétt að þakka fyrir mig. Geiri breiði yfirkokkur fær stóran plús í kladdann fyrir frábæran mat og Eiki aðstoðarkokkur fær stjörnu og broskall fyrir sitt framlag. Aðrir fá mikið hrós, klapp á bakið og geirvörtusnúning fyrir skemmtilega dagstund og frábæra kvöldstund. Ég er ekki frá því að ég sé svona rétt að losna við strengi og stirðleika eftir fótboltann. Vann ég ekki annars í boltanum? Var ekki búið að semja um það?
Næst á dagskrá eru páskar, hverjir koma norður hvenær og hvernig. Eigum við að gera eitthvað merkilegt, bolti, spilakvöld (heyrst hefur að Erla hans Svans sé búin að baka og Svanur hefur fengið nýja flösku af þýskum snafs), almennt partýstand eða bara ljóðakvöld. Endilega sendið línu, maður er bara farin að sakna ykkar. Fyrir þá sem hafa áhuga og verða komnir í tíma, þá er síðasta pub-quizið hjá mér Miðvikud. 8.apríl og hefst það kl: 20.00, það verður tvöfalt eða 50 spurningar, gríðarleg skemmtun og æsileg spenna.
Af hverju eru ekki allar þær nýju íbúðir sem standa tómar notaðar undir kanabisræktun, ríkið veitir styrk og svo er dæmið flutt úr landi, erum við ekki að tala um gríðarlegar tekjur. Annað hvernig er þessu fargað, sé fyrir mér bálköst upp í sveit, kveikt í, svo sitja menn úti í náttúrunni, bólufreðnir og skemmtilegir, allt saman frítt.
http://www.youtube.com/watch?v=mE3gWZk4AEo
Klassískur Simpsons:
http://www.youtube.com/watch?v=N-TZ8Z5S9rI&feature=related
http://www.youtube.com/watch?v=qnPGDWD_oLE&feature=related
http://www.youtube.com/watch?v=R4i8SpNgzA4&feature=related
http://www.youtube.com/watch?v=5yGJGTjV2WE&feature=related
http://www.youtube.com/watch?v=8dbDJzDV1CM&feature=related
http://www.youtube.com/watch?v=DNZmqtzoYaY
http://www.youtube.com/watch?v=NX_23r7vYak&feature=related
Gott Metallica-cover
http://www.youtube.com/watch?v=VmMlMsqjcT4
Verulega slæmt Metallica-cover
http://www.youtube.com/watch?v=TeLK1iZdy1w&feature=related
Bið að heilsa öllum og óskir ykkur pungum góðrar helgar, með von um hækkandi sól og lækkandi gengi, með tröllatrú á að komandi tímar muni leiða af sér góða hluti sem allir munu fá að njóta til janfræðis við kerfiskalla og bankaskunka, með von í hjarta að sú lífsbarátta sem landinn hefur nú muni koma sér vel fyrir alla hvort sem um ræðir stöðumælavörðinn
á Djúpavogi eða klappstýruna á Drangsnesi, það þarf oft ekki annað en að líta aðeins til baka og hugsa hvað var það sem gerði mig glaðann árið1995, 1999 eða 2002 og telja í sig kjark að viðurkenna að ég þarf ekki á þessum flatskjá að halda, það er sama fréttin í 28" kassa og í 48" flatskjá. Nú er ég hættur, held það, jú eða nei ég er sem sé bara að skrifa nógu langann texta að síðasta færsla færist neðar.
Góðar stundir.
»
15.03.2009 19:11:26 / elmo
»
14.03.2009 22:25:26 / gummi
Ég vil þakka Áskeyri fyrir framúrskarandi framtak í dag. Hann bauð upp á topp leik með góðum félögum og Steingrímsgraut, slátur og smörebröd með því. Svona eiga menn að vera.

Svo er það bara næsti laugardagur. Elmar ætlar að athuga með knattaspyrnuaðstöðu fyrir okkar, þannig að Tumi, þú tekur Mannarabúninginn með þér suður... nema þú kjósir að vera á nærbuxunum einum saman í kjölfarið á leiknum í dag.
Okkur vantar 1 til 4 menn þannig að ef Dr. Örvar sér þetta þarf hann að fá frívakt á laugardaginn. Svo væri flott að fá fleiri bræður að norðan með Mr, Tí.Auf wiedersehen und schönen Wochenende nach necsthe Wochenende.

P.S. Eiki ætlar að fara kaupa sér markmannshanska.
»
11.03.2009 15:14:44 / tommi
Já drengir mínir ætlaði bara að koma inn smá tilkynningu. Ég mun heiðra borgarbúa með nærveru minni helgina 20-21 mars. Geiri breiði er víst eitthvað að sjóða saman dagskrá fyrir Laugardaginn, sameiginlegur matur og jafnvel póker eða eitthvað á þá leið. Vonandi sér maður sem flesta. Ykkar einlægi Tómas.
»
05.03.2009 15:38:48 / buni
Sælir drengir!!
Það streyma nú góðar fréttir inn í samfélgið góða. Fyrst ber að nefna að ég er að flytja í Kópavogsklíkuna rómuðu og mun þar hitta fyrir yndislega menn.
Í öðrum fréttum má nefna að Skriðjökullinn, arkitektinn, handboltamaðurinn og gleðipinninn Logi Einarson er kominn í framboð fyrir SF í N A kjördæmi. Þar fer góður maður með sterka réttlætiskennd sem myndi lífga mikið upp á drepleiðinlegt Alþingi.
Þar sem Alþingi er sérstaklega fátæklegt af Akureyringum er þarna komið gott tækifæri til að koma Loga inn og í þingmannsstól. Það vannst mikill sigur þegar Hössi komst inn og nú er málið að halda áfram!!
Loga Einars í 1-3 sætið hjá SF. Prófkjörið er hafið og stendur fram á laugardag.
edit:
SVONA KJÓSUM VIÐ LOGA Í 1.- 3. SÆTIÐ
Skref 1: Innskráning á vef www.xs.is. Veljið kjördæmi og skráið inn kennitölu.
Skref
2: Staðfestið að persónuupplýsingar séu réttar, (athugið að ekki er um
skráningu í flokkinn að ræða). Lykilorð verður þá sent í heimabankann.
Skref
3: Opnið viðeigandi heimabanka og sækið lykilorð undir "yfirlit" og
síðan "rafræn skjöl" ("netskjöl" í Íslandsbanka). Sláið inn lykilorðið.
Skref 4: Kjörseðillinn kemur þá upp. Veldu frambjóðendum númer frá 1-8.
Skref 5: Þegar frambjóðendum hefur verið raðað, þá er smellt á "Greiða atkvæði".
»